Í boði eru yfir 30 sérvaldar gönguleiðir á svæðinu þar sem á hverjum stað er að finna hólk með upplýsingum um staðinn, gestabók og stimpli. Stimplum er safnað í kortin og eiga þeir sem skila inn fullnýttum kortum fyrir ákveðinn tíma, möguleika á veglegum vinningum.

Perlur Fljótsdalshéraðs

30 gönguleiðir í sveitarfélögunum Fljótsdalshéraði og Fljótsdalshreppi. Sveitarfélögin ná yfir um 10% af flatarmáli Íslands.
Perlurnar eru af ýmsum toga, fossar og vötn, gil og gljúfur, smáhellar og víkur en flestar eru þær fjöll og fjallstoppar með útsýni til allra átta.
Það er Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sem hefur haft veg og vanda af vali á þessum perlum og gönguleiðum.

Gönguleikur

Við hverja perlu eða áfangastað er hólkur sem inniheldur upplýsingar um staðinn ásamt gestabók og stimpli.
Með því að stimpla í sérstakt kort, sem er til sölu á nokkrum stöðum og staðfesta þannig komu sína á áfangastaðinn er hægt að taka þátt í skemmtilegum gönguleik. Hvert kort þarf að vera með stimpla frá 10 stöðum.
Hægt er að kaupa þessi kort í Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum, á skrifstofu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, Tjarnarási 8 Egilsstöðum, á Egilsstaðastofu við tjaldsvæðið á Egilsstöðum og í gönguferðum á vegum Ferðafélagsins.
Kortum skal skilað á skrifstofu Ferðafélagsins eða í Egilsstaðastofu þegar búið er að stimpla í þau.
Dregið er úr innsendum kortum í oktober ár hvert – flottir vinningar.

 

Gönguleiðirnar

Eru af ýmsum toga og liggja um margs konar land. Sumar taka aðeins um klukkustund en aðrar taka allan daginn.
Flestar eru auðveldar eða miðlungs erfiðar en í sumum tilvikum getur þurft sérstakan gönguútbúnað, sérstaklega á veturna. Við hverja áfangastaðalýsingu í þessum bæklingi er mat lagt á hversu erfið og löng leiðin er við venjulegar aðstæður. Göngutíminn, sem gefinn er upp, er miðaður við báðar leiðir. GPS punkturinn, sem gefinn er upp, er miðaður við hólkinn á hverjum áfangastað nema annars sé getið.

 

SKOÐAÐU BÆKLINGINN HÉR

Allir sem heimsækja Perlur Fljótsdalshéraðs eru beðnir um að sýna náttúru svæðisins virðingu.
Göngum ávallt frá áningarstað eins og við viljum koma að honum.
Skiljum ekki eftir rusl á víðavangi né urðum það, tökum ruslið með til byggða eða setjum það í sorptunnur.
Samkvæmt náttúruverndarlögum er almenningi heimilt að ganga um óræktuð lönd og dvelja þar án sérstaks leyfis en vinsamlega sýnið landeigendum fulla tillitssemi, gangið eftir merktum gönguleiðum þar sem þær eru og virðið rétt þeirra m.t.t. búfénaðar og ræktunar hvers konar. Muna þarf að loka hliðum og ganga vel um girðingar. Skiljið eftir skilaboð um áætlaða leið, varaleið og áætlaðan tíma. Ef út af bregður reynið þá að láta vita af ykkur.
– Vinsamlegast setjið ekki rusl í hólkana eða stimplið í gestabækur.
– Kveikjum ekki eld á grónu landi.
– Rífum hvorki upp grjót né hlöðum vörður.
– Sköðum ekki gróður.
– Truflum ekki dýralíf.
– Skemmum ekki jarðmyndanir.
– Rjúfum ekki öræfakyrrð að óþörfu.
– Ökum ekki utan vega.
– Fylgjum merktum göngustígum þar sem þeir eru.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Simi: +354 863 5813

Vefur: www.ferdaf.is

Netfang: ferdaf@ferdaf.is

X