Aðalabóli í Hrafnkelsdal

Aðalból er innsti bær í Jökuldalshreppi og meðal þeirra bæja, sem eru lengst frá sjó á landinu, 100 km í Héraðsflóa og 60 km í botn Berufjarðar. Bærinn er þekktur úr sögu Hrafnkels Hallfreðarsonar Freysgoða. Hrafnkels saga Freysgoða gerist á Austurlandi og greinir frá átökum höfðinga og bænda á tíundu öld. Aðalsögupersónan er Hrafnkell Freysgoði, valdamikill goðorðsmaður á Aðalabóli í Hrafnkelsdal. Hann var mikill fyrir sér og var „ójafnaðarmaður mikill, en menntur vel“. Hann hafði gefið hestinn Freyfaxa Frey til jafns á móti sér, því hann hafði miklar mætur á því goði, og lagt bann við að aðrir riðu hestinum en hann sjálfur.

Smali hans vann sér það til óhelgi að ríða hestinum og Hrafnkell drap hann umsvifalaust eins og hann hafði heitið. Af þessum sökum var Hrafnkell dæmdur sekur og missti jörð og goðorð. Hann settist að á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal og náði eignum sínum aftur og bjó að Aðalbóli til dauðadags.
Minjar um búsetu í Hrafnkelsdal til forna hafa fundist á Aðalbóli og annars staðar og örnefni í landi bæjarins minna á söguna. Haugur Hrafnkels er ma. Að finna við bæinn. Í nágrenni hafa fundist fornir gripir sem hafa styrkt sannleiksgildi þessarar sögu. Í dag er rekin ferðamannaþjónusta á Aðalbóli. Gambramýrar eru í landi Aðalbóls og þar örlar á jarðhita. Upp úr Hrafnkelsdal liggur jeppavegur inn á Vesturöræfi að Snæfellsskála og Eyjabökkum.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X