Rangárhnjúkur (N65°19.410-W14°35.498) // 4 klst.

Auðveldast er að ganga vegarslóða frá Fjallsseli. Þegar upp er komið er farið út af veginum og gengið út á Rangárhnjúkinn þar sem hólkurinn með gestabók og stimpli er. Gaman er að fara niður hjá Egilsseli og ganga síðan veginn í Fjallssel. Er þá gengið framhjá Dansgjá, sem er sérkennileg gjá eða sprunga í gegnum klettaás, vestur af Staffellsbjörgum rétt við veginn.

Sjá bækling með gönguleið hér.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X