Rauðshaugur (N65°12.77-W14°23.01) // 3 – 4 klst.
Rauðshaugur er áberandi brjóstlaga hóll upp af Höfða og sést víða af Héraði. Þjóðsaga segir hólinn vera grafhaug Rauðs bónda á Ketilsstöðum, sem nefndur er Ásrauður í fornsögum, og sést þaðan til tveggja annarra frægra hauga, Bessahaugs í Fljótsdal og Ormarshaugs í Fellum.
Sagan segir að Rauður hafi verið heygður með öll sín auðæfi og að fólk hafi reynt að grafa í hauginn en orðið frá að hverfa þar sem bærinn á Ketilsstöðum virtist standa í ljósum logum. Frábært útsýni yfir Fljótsdalshérað.
Genginn vegaslóði frá Fagradalsvegi (N65°14,590-W14°21.156)

Rauðshaugur er ein af Perlum Fljótsdalshéraðs og er þar hólkur með gestabók og einnig stimpli fyrir þá sem taka þátt í gönguleik Perlnanna.

Sjá bækling með gönguleið hér.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

X