Stapavík (N65°36.17-W13°57.97) // Um 3 klukkustunda ganga

Stapavík er lítil klettavík sem stendur við Héraðsflóa. Í upphafi 20. aldar gegndi víkin mjög mikilvægu hlutverki sem verslunarstaður fyrir Fljótsdalshérað en þar var vörum skipað upp alveg fram á sjötta áratug síðustu aldar. Þegar vegur var lagður yfir Vatnsskarð til Borgarfjarðar eystra, lagðist starfsemi í Stapavík af.

Gengið er frá bílastæði niður fyrir heimkeyrsluna að Unaósi og út með Selfljóti. Gengið er framhjá Eiðaveri en þaðan lét Margrét ríka á Eiðum róa til fiskjar um miðja 15. öld. Upplagt er að koma við á Krosshöfða þar sem var löggilt verslunarhöfn frá 1902.

Stapavík er ein af Perlum Fljótsdalshéraðs og er hólkur með gestabók og einnig stimpli fyrir þá sem taka þátt í gönguleik Perlnanna.

Sjá bækling með gönguleið hér.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

 

X