Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir

Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir er rómað, fjölskyldurekið hótel sem hvílir á gömlum merg íslenskrar bændamenningar. Hótelið mætir ströngustu nútímakröfum um gæði, glæsileik og aðbúnað, um leið og það varðveitir uppruna sinn sem nær aftur til ársins 1903 og ljær því einstakan blæ. Gestir geta valið um vel búin og rómantísk antík-herbergi í eldri hluta hótelsins eða nútímaleg herbergi yngri byggingar.
Hjarta Austurlands
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir stendur á bökkum hins mikla og fagra Lagarfljóts við Egilsstaði og er þannig miðsvæðis á Austurlandi. Hótelið liggur vel við samgöngum í lofti, á láði og legi og er t.d. aðeins klukkustundarlöng ferð flugleiðis milli Reykjavíkur og Egilsstaðaflugvallar, en hótelið er þar skammt frá. Það er einnig upplagt sem miðpunktur ferða um austurhluta Íslands, allt frá hálendi til strandar. Fjölbreytt afþreying er í boði á svæðinu.
Gistihúsið – Lake Hotel Egilsstaðir er svipmikið hótel með öllum nútímaþægindum en um leið er það hlýlegt og umvefjandi. Hótelið er innan vébanda félagsins Ferðaþjónustu bænda. Starfsfólk er um 40 manns; einvalalið sem hefur vellíðan og ánægju gestanna í fyrirrúmi.
Verið velkomin að njóta gestristni og góðs aðbúnaðar í fögru umhverfi við Lagarfljót.

ÞJÓNUSTUAÐILAR

Simi: +354 471 1114

Vefur: www.gistihusid.is/

Netfang: hotel@gistihusd.is

 

X