Flýtilyklar
Þriðjudagsgöngur
12. febrúar kl. 17:00-18:00
Menning
Farið frá Egilsstaðastofu
Ætla að bjóða upp á gönguferðir fram á vor á þriðjudögum klukkan 17. Mæting á bílastæði hjá Egilsstaðastofu / Tjaldsvæðið á Egilsstöðum allir velkomnir.
Tek það skýrt fram að þessar göngur eru hvorki erfiðar eða hraðar henta því frábærlega fyrir þá sem eru að koma sér í útivistargírinn eða þá sem vilja ganga í fallegu umhverfi og góðum félagsskap.
Samhliða göngugleðinni verður boðið upp á létta fræðslu um ýmislegt sem viðkemur útivist.
Minni á endurskin og gott er að hafa höfuðljós með í för.
Hlakka til að sjá ykkur.
Bestu kveðjur Þórdís Kristvins